Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 28. október 2016 var lögð fram umsókn
PK-Arkitekta ehf.
, mótt. 19. september 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi Austurhafnar vegna reita nr. 1, 2 og 11 við Austurbakka 2. Breytingin gengur út á aukningu á leyfilegu byggingarmagni neðanjarðar á reit 1 og 2, samkvæmt uppdr.
PK-Arkitekta ehf.
, dags. 2. júní 2015, síðast breyttur 28. júní 2016. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.