Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Sigurðar Einarssonar f.h.
Faxaflóahafna sf.
mótt. 12. desember 2017 varðandi breytingu á deiliskipulagi Austurhafnar vegna lóðar nr. 2 við Austurbakka. Í breytingunni felst að bætt verður við nýrri lóð með byggingarreit 14 á Faxagarði fyrir spenni- og rafdreifistöð auk vaktaðstöðu, samkvæmt uppdr.
Batterísins Arkitekta ehf.
dags. 14. ágúst 2018. Tillagan var auglýst frá 19. september 2018 til og með 31. október 2018. Engar athugasemdir bárust.