Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 15. febrúar 2019 var lögð fram fyrirspurn T.ark
Arkitekta ehf.
dags. 12. febrúar 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi Ármúla, Vegmúla, Hallarmúla vegna lóðarinnar nr. 16 við Suðurlandsbraut sem felst í að stækka byggingarreit að Ármúla 13A (á lóð nr. 16 við Suðurlandsbraut) til að koma fyrir flóttastiga á austurhlið, samkvæmt skissu dags. 26. febrúar 2019. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 1. mars 2019.
Svar
Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 1. mars 2019 samþykkt.