Suðurlandsbraut 16
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 820
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 8. janúar 2021 var lögð fram umsókn Einars V. Tryggvasonar dags. 15. desember 2020 ásamt bréfi dags. 12. desember 2020 varðandi breytingu á deiliskipulagi Ármúla, Vegmúla og Hallarmúla vegna lóðarinnar nr. 16 við Suðurlandsbraut. Í breytingunni felst stækkun hússins ásamt því að setja skyggni yfir inngang á þriðju hæð og útistiga upp á þriðju hæð, samkvæmt uppdr. Einars V. Tryggvasonar dags. 28. október 2020. Einnig er lögð fram yfirlýsing/samþykki Veitna ehf. vegna spennistöðvar 518 að Vegmúla 4, ódags. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Suðurlandsbraut 14.
Erindið verður grenndarkynnt þegar umsækjandi hefur greitt fyrir grenndarkynningu sbr. 7.6. gr. og 12. gr., sjá gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1472/2020.

108 Reykjavík
Landnúmer: 103523 → skrá.is
Hnitnúmer: 10022018
Síðasta markaðsverð
12.400.000 kr.
Atvinnuhúsnæði · 35 m² · 28.08.2024
Kaupskrá 3 eignir
12.400.000 kr. 28.08.2024
Atvinnuhúsnæði · 35 m² · bygg. 1960 · HMS
29.000.000 kr. 06.02.2018
Atvinnuhúsnæði · 88 m² · bygg. 1960 · HMS
11.100.000 kr. 29.06.2015
Atvinnuhúsnæði · 63 m² · bygg. 1960 · HMS
Deiliskipulag
Suðurlandsbraut, Hallarmúli, Ármúla og Vegmúli
Samþykkt 30.04.2002 · Deiliskipulag. Nýtt skipulag