Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn T.ark
Arkitekta ehf.
dags. 20. mars 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi Ármúla, Vegmúla og Hallarmúla vegna lóðarinnar nr. 16 við Suðurlandsbraut. Í breytingunni felst að koma fyrir flóttastiga úr húsinu á austurgafli og mun byggingarreiturinn stækka sem honum nemur, færa þarf núverandi bílastæði vegna stækkunar byggingarreits og gerð er kvöð um gönguleið meðfram flóttastiga, samkvæmt uppdr. T. ark
Arkitekta ehf.
dags. 22. maí 2019. Einnig er lagt fram samþykki meðlóðarhafa mótt. 20. mars 2019. Erindi var grenndarkynnt frá 12. júní 2019 til og með 10. júlí 2019. Engar athugasemdir bárust.
Svar
Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar