Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 vikum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 370
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram tillaga fulltrúa Framsóknarflokksins um aðgerðir til að bregðast við fáliðun í leikskólum Reykjavíkurborgar, sbr. 4. liður fundur borgarstjórnar dags. 13. janúar 2026. Liður 4 af tillögunni var vísað til umhverfis- og skipulagsráðs til meðferðar. Einnig er lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs, Vinnuskóla Reykjavíkur, dags. 6. febrúar 2026.
Svar

Tillögunni er vísað frá með 4 atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Vinstri grænna. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins greiða atkvæði gegn frávísuninni.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Vinstri grænna:
Tillaga Framsóknarflokksins um fjölgun vinnuskólastarfsfólks í leikskólum borgarinnar er vísað frá þar sem hún virðist byggja á þeim misskilningi að Vinnuskólinn sjálfur skilgreini þann fjölda ungmenna sem fái störf á leikskólum. Raunin er sú að leikskólunum er í sjálfsvald sett hvort og þá hversu mörgum ungmennum þeir taki á móti og mikilvægt er að leikskólastjórnendur haldi faglegu sjálfstæði sínu í þeim efnum.