Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 vikum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 370
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram að nýju fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um vinnuskólann, sbr. 22. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 28. janúar 2026. Einnig er lagt fram svar umhverfis- og skipulagssviðs, mannauðsskrifstofu, dags. 5. febrúar 2026.
Svar

Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins þakka fyrir greinargott svar við fyrirspurn um laun í Vinnuskóla Reykjavíkur á tímabilinu 2022-2026. Í svarinu kemur skýrt fram að kjör unglinga í Vinnuskólanum hafa verið skert verulega á kjörtímabilinu. Þáverandi vinstri meirihluti í borgarstjórn ákvað að skerða laun unglinganna með því að halda launum þeirra óbreyttum milli áranna 2022-2023. Núverandi vinstri meirihluti hefur fest kjaraskerðinguna í sessi og fellt tillögur Sjálfstæðisflokksins og Reykjavíkurráðs ungmenna um að launin verði leiðrétt í samræmi við vísitölu. Á árunum 2022-2025 hækkaði landsvísitala launa um 31,6% en á sama tíma hækkuðu laun í Vinnuskólanum aðeins um 14,5% að meðaltali. Laun 8. bekkjar hafa hækkað um 8%, 9. bekkjar um 18% og 10. bekkjar um 17,6% á tímabilinu. Fyrirhugað er að laun unglinganna hækki aðeins um 3,5% milli áranna 2025-2026 þrátt fyrir að ársverðbólga mælist nú 5,2%. Kjaraskerðingin er augljós og hún byggist á pólitískri ákvörðun vinstri flokkanna í borgarstjórn. Er afar ósanngjarnt að fyrsta reynsla margra unglinga af vinnumarkaði, felist í því að verða fyrir slíku óréttlæti.