Fyrirspurn
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 20. nóvember 2025 ásamt kæru nr. UUA2511055, dags. 19. nóvember 2025, þar sem kærð er ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík, dags. 20 október 2025, um að fjarlægja beri smáhýsi af lóð Vogalands 7 eða færa það 3 m. frá lóðarmörkum Vogalands 9. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar dags. 8. janúar 2026. Jafnframt er lagður fram bráðabirgðaúrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 24. nóvember 2025. Úrskurðarorð: Frestað er réttaráhrifum ákvörðunar byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 20. október 2025 um að gera kærendum að fjarlægja smáhýsi á lóð þeirra að Vogalandi 7 eða færa það 3,0 m. frá lóðarmörkum Vogalands 9.