Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 viku síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 371
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram bókun frá fundi mannréttindaráðs, sbr. 3. liður, dags. 12. febrúar 2026, vegna frávísunar á tillögu um almenningsbekki.
Svar

Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúa Viðreisnar:
Fulltrúi Viðreisnar ítrekar bókun sína frá fundi ráðsins þann 28. janúar sl. Viðreisn hefði fagnað því ef undirtektir um hugmyndir um minningarbekki hefði verið jákvæð. Að gefa bekkjum í borgarlandinu dýpri og sterkari merkingu er fagnaðarefni og vel hægt að hanna í kringum það bæði skemmtilega og menningarlega umgjörð. Það að heyra hversu flókið verkferli er við uppsetningu á einum bekk er gefur vísbendingu um mikilvægt sé að einfalda kerfið til að auka hagkvæmni rekstur borgarinnar. Borgarfulltrúa Viðreisnar er það alveg óskiljanlegt hvers vegna er ekki hægt að taka vel í svona tillögur og virðist sem frasinn “computer says no” eigi hér við, við þessa frávísun ráðsins.