Fyrirspurn
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 5. janúar 2026 ásamt kæru nr. 2601002, dags. 2. janúar 2026, þar sem kærð er ákvörðun borgarskipulags að breyta deiliskipulagi fyrir reitinn Háteigsveg 35 án þess að ákvörðunin sé sett í lögbundið ferli. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar dags. 16. febrúar 2026.