Tillögunni er vísað frá með 4 atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Flokks fólksins. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins greiða atkvæði gegn frávísun málsins.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og áheyrnarfulltrúa Vinstri grænna:
Sama tillaga hefur þegar verið afgreidd í ráðinu. Tillögunni er vísað frá.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins harma að meirihluti Samfylkingar, Pírata, Sósíalistaflokksins, Flokks fólksins og Vinstri grænna skuli án umræðna vísa frá tillögu um að gerð verði breyting á aðalskipulagi, sem heimili rekstur matvöruverslunar á reit M9c (Bauhaus-reit). Umrædd tillaga var lögð fram í borgarstjórn, sem vísaði henni til umhverfis- og skipulagsráðs og ætlaðist þar til að þar yrði hún skoðuð og afgreidd efnislega en ekki vísað frá umyrðalaust. Grafarholt og Úlfarsárdalur eru ört vaxandi hverfishlutar og þar búa nú um 9.000 manns. Íbúar hverfisins hafa lengi óskað eftir því að sköpuð verði skilyrði fyrir rekstri stórverslunar með lágu vöruverði og miklu vöruúrvali. Bauhaus-reiturinn er ein stærsta atvinnulóð borgarinnar. Samkvæmt aðalskipulagi er heimilt að byggja 3-4 þúsund fermetra atvinnuhúsnæði á lóðinni til viðbótar, en þó ekki matvöruverslun. Eigendur Bauhaus hafa hug á því að nýta lóðina undir matvöruverslun en hafa hingað til ekki fengið heimild borgarinnar til þess vegna stífra skilyrða í aðalskipulagi. Sjálfsagt er að Grafhyltingar og Úlfdælingar njóti nútímaverslunarhátta og þurfi ekki að leita langt yfir skammt eftir nauðsynjum. Er því rétt að þeir hafi aðgang að stórverslun með miklu úrvali og lágu vöruverði eins og íbúar annarra hverfa borgarinnar. Tilkoma slíkrar verslunar á reitnum myndi fela í sér mikla þjónustubót fyrir íbúa Grafarholts og Úlfarsárdals.