Tillögunni er vísað frá. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Viðreisnar greiða atkvæði gegn frávísun.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Viðreisnar:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Viðreisnar harma að tillögu um matvöruverslun á Bauhaus-reit hafi verið vísað frá í umhverfis- og skipulagsráði. Tillagan svarar skýru ákalli íbúa Grafarholts og Úlfarsárdals um bætt aðgengi að dagvöruverslun. Mikilvægt er að skipulag borgarinnar taki mið af raunverulegum þörfum íbúa og að skapað verði svigrúm fyrir verslun sem getur boðið hagstætt verð og fjölbreytt úrval. Það vekur vonbrigði að tillögu sem þessari skuli ekki hafa verið gefinn raunhæfur farvegur til frekari skoðunar.