Tillögunni er vísað til meðferðar skóla- og frístundaráðs.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Vinstri grænna:
Fulltrúar samstarfsflokkanna telja að orku og fjármagni borgarinnar væri betur varið með því að efla starfsemi Vinnuskólans á hefðbundnum starfstíma sínum en að færa verksvið hans inn á veturinn. Minnt er á að nám er vinna og rannsóknir sýna að of mikil aukavinna getur bitnað á námsárangri ungmenna og tekið tíma frá dýrmætu frístundastarfi.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Viðreisnar:
Þarna eru tækifæri til að efla mannauð og styrkja samfélagshugsun, það plumma ekki öll börn sig í skipulögðu íþróttastarfi, það er möguleiki að margir finni sína ástríðu á nákvæmlega vettvangi þar sem að þau finna sér hlutastörf. Fulltrúi Viðreisnar dregur í efa faglega mat Vinnuskólans í Reykjavík að börn eigi frekar að einbeita sér að námi heldur en að vinna hlutastörf, það þurfi að líta á þetta með opnum hug. Tillagan mun vonandi eiga farsælan veg innan Skóla- og frístundaráðs.