Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgangna og borgarhönnunar.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins lýsa yfir ánægju og þakklæti með vandaða úttekt íbúaráðs Grafarvogs á umferðaröryggismálum í hverfinu. Í úttektinni er að finna fjölmargar gagnlegar ábendingar og tillögur um hvernig megi auka umferðaröryggi í hverfinu. Margar ábendinganna eiga fullt erindi víðar í borginni.
Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins:
Nú liggur fyrir skýrsla starfshóps íbúaráðs Grafarvogs. Starfshópurinn hafði það hlutverk að gera úttekt á umferðaröryggismálum í hverfinu. Nú liggur fyrir að alvarlegum slysum Í Grafarvogi hefur fjölgað um 5% ef borinn er saman fjölda alvarlegra slysa sl. fimm ár samanborið við fimm ár fyrir 10 árum síðan. Á sama tíma hefur öðrum slysum, sem ekki teljast alvarleg, fjölgað um 27%. Starfshópurinn leggur fram fjölmargar ábendingar um bætt umferðaröryggi í hverfinu. Flokkur fólksins tekur undir með íbúaráði Grafarvogs um mikilvægi þess að farið verði yfir tillögur starfshópsins og þeim forgangsraðað eftir mikilvægi aðgerða.