Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 329
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar samgöngustjóra dags. 9. desember 2024 ásamt fylgigögnum.
Svar

Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins ítreka enn og aftur tillögu sína um að fallvörn verði sett upp meðfram lágum bryggjukanti við Naustabryggju í því skyni að draga úr slysahættu þar. Athygli skal vakin á því að þarna hafa orðið slys, þar af a.m.k. eitt alvarlegt. Ekki verður séð að þær takmörkuðu breytingar, sem gerðar voru á svæðinu á síðasta ári, dragi úr slysahættu svo nokkru nemi.