Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 329
Annað
Fyrirspurn
Fram fer kynning á aðgengisbætandi aðgerðum við strætóstöðvar.
Svar

Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar:
Undanfarin ár hafa 70 strætóbiðskýli verið endurgerð í borginni. Vel hefur tekist til tekist til við gerð nýrra skýla með leiðilínum, bættu yfirborði, betri ruslastömpum og þægilegri staðsetningu skilta. Afar mikilvægt er að aðgengi að skýlunum og þar með strætó henti öllum. Fjölmörg skýli verða endurbætt á næstunni. Stefnt er að því að ljúka hönnun á endurgerð þeirra 148 skýla sem eftir standa. Framkvæmdum ætti að ljúka innan fárra ára.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins lýsa yfir ánægju með yfirstandandi vinnu við að bæta aðgang að biðstöðvum strætisvagna í Reykjavík. Jafnframt er minnt á tillögu Sjálfstæðisflokksins frá mars 2023 um að ráðist verði í uppsetningu skjólgóðra og upphitaðra biðskýla fyrir strætisvagnafarþega í Reykjavík. Slíkum biðskýlum verði komið fyrir á fjölförnum biðstöðvum í öllum hverfum borgarinnar í því skyni að bæta aðstæður farþega og fjölga viðskiptavinum Strætó.
Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins:
Varla er með þessu yfirliti verið að segja að búið sé að “dekka” allar þær biðstöðvar sem þarfnast endurgerðar og eða lagfæringar þ.e. þær sem halda áfram að vera í notkun. Um er að ræða 546 stöðvar í heild. Af þeim hafa aðeins verið endurgerðar 35 og aðrar 35 sem hluti af útboði án frekari skýringa. Tæplega 100 eru innan “sérrýmis s.s. borgarlínu eða hafnarsvæðis” hvað svo sem það þýðir. Verða þær biðstöðvar ekki lagaðar? Einar 32 eru sagðar þjóna áfram borgarlínuleiðum sem þýðir hvað, verða þær endurgerðar/lagfærðar? Rúmlega fjörutíu tengjast öðrum verkefnum og það sem þó er skýrt er að 124 detta út í nýju leiðarneti og aðeins 6 þurfa ekki endurgerð. Hvað með restina af þessum 546 stöðvum? Málið er að allt of hægt hefur gengið að endurgera biðstöðvar. Árið 2020 var gerð úttekt á aðgengi að biðstöðvum. Skoðað var yfirborð. Þá kom í ljós að 546 stöðvar voru metnar ófullnægjandi. Fram til þessa dags hafa aðeins verið lagfærðar þær sem eru allra verst farnar bæði aðgengi og yfirborð. Fjölmargar aðrar eru hættulegar vegna viðhaldsskorts. Tafir hafa orðið á borgarlínu og mikilvægt er að allar stöðvar verði þannig úr garði gerðar að þær skapi ekki slysahættu og að fólk, einnig þeir sem er hreyfihamlaðir hafi aðgengi að þeim.