Fyrirspurn
420497-2109 Apartments and rooms ehf., Ármúla 38, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til þess að breyta atvinnuhúsnæði í íbúðarhúsnæði með því að gera 5
nýjar íbúðir og koma fyrir svölum í vesturhluta 2. hæðar í atvinnu-og skrifstofuhúsi á lóð
nr.4 við Hraunberg. Jafnfram er erindi BN058584 dregið til baka.
Erindi fylgir fundargerð húsfundar dags 16. september (ekkert ártal), bréf frá hönnuði
dags. 7. september 2021, A3 afrit af samþykktum teikningum með stimpli
byggingarfulltrúa dags 14. janúar 2003.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 25. júní 2021 fylgir
erindi, ásamt bréfi skipulagsfulltrúa dags. 29. júní 2021.