Holtsgata 16
Holtsgata 16
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1134
5. október, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
480514-0680 Leiguafl hf., Borgartúni 28, 105 Reykjavík Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum svölum íbúðar 0201, síkka gluggaop og setja í það hurð út í garð frá íbúð 0101, sameina núverandi geymslur í mhl.02 og útbúa vinnustofu fyrir íbúð 0101, mhl.01, og bæta við tveimur geymslum við suðaustur gafl bakhúss, mhl. 02, á lóð nr. 16 við Holtsgötu. Stækkun mhl. 02: 10.3 ferm. 31.4 rúmm. Erindi fylgir skýrsla um húsaskoðun dags. 4. október, bréf frá hönnuði dags. 25. ágúst 2021, samþykki lóðarhafa nr. 14A, á ónúmeruðum uppdrætti Ginga teiknistofu dags. júlí 2021, samþykki lóðarhafa nr. 14 B í tölvupósti dags. 26. ágúst 2021, og yfirlit breytinga á afriti af aðaluppdráttum samþykktum 25. júlí 2017.
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og
lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að
viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að
samþykktin öðlist gildi. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100365 → skrá.is
Hnitnúmer: 10019751