Hraunberg 4
Hraunberg 4
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1139
9. nóvember, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
420497-2109 Apartments and rooms ehf., Ármúla 38, 108 Reykjavík Sótt er um leyfi til þess að breyta atvinnuhúsnæði í íbúðarhúsnæði með því að gera 5 nýjar íbúðir og koma fyrir svölum í vesturhluta 2. hæðar í atvinnu-og skrifstofuhúsi á lóð nr.4 við Hraunberg. Jafnfram er erindi BN058584 dregið til baka. Erindi fylgir fundargerð húsfundar dags 16. september (ekkert ártal), bréf frá hönnuði dags. 7. september 2021, A3 afrit af samþykktum teikningum með stimpli byggingarfulltrúa dags 14. janúar 2003. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 25. júní 2021 fylgir erindi, ásamt bréfi skipulagsfulltrúa dags. 29. júní 2021.
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og
lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að
viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni
verði þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

111 Reykjavík
Landnúmer: 112202 → skrá.is
Hnitnúmer: 10019774