Laugavegur 50
Laugavegur 50
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1102
9. febrúar, 2021
Frestað
Fyrirspurn
591297-3689 MÁLSTAÐUR ehf, Ingólfsstræti 3, 101 Reykjavík Sótt er um leyfi til að byggja steinsteypta viðbyggingu á bakhlið, hækka þak og byggja kvist og svalir á framhlið, innrétta veitingastað í kjallara gamla hússins, vinnustofu listamanns á jarðhæð viðbyggingar og tvær íbúðir á efri hæðum með utanáliggjandi álstiga á húsi á lóð nr. 50 við Laugaveg. Erindi fylgir bréf hönnuðar dags. 2. desember 2020 og umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 11. janúar 2021. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 5. febrúar 2021 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 5. febrúar 2021. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 8. febrúar 2021. Stækkun: 118,5 ferm., 462,1 rúmm.
Svar

Frestað.
Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 5. febrúar 2021 og umsagnar
Minjastofnunar Íslands dags. 11. janúar 2021.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101524 → skrá.is
Hnitnúmer: 10017567