Laugavegur 50
Laugavegur 50
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1122
6. júlí, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
591297-3689 MÁLSTAÐUR ehf, Ingólfsstræti 3, 101 Reykjavík Sótt er um leyfi til að byggja steinsteypta viðbyggingu á bakhlið, einangaða að utan og klædda bárustáli, til að hækka þak og byggja kvist á framhlið og svalir á bakhlið, færa glugga eldra húss til upprunalegs horfs og innrétta veitingastað í flokki I í kjallara gamla hússins, vinnustofu listamanns á jarðhæð viðbyggingar og tvær íbúðir á efri hæðum á lóð nr. 50 við Laugaveg. Erindi fylgir bréf hönnuðar dags. 2. desember 2020 og umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 11. janúar 2021. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 5. febrúar 2021 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 5. febrúar 2021 og bréf skipulagsfulltrúa dags. 8. febrúar 2021. Einnig fylgir bréf hönnuðar dags. 15. maí 2021 og endurskoðuð umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 12. maí 2021. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 11. júní 2021 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. júní 2021. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 14. júní 2021. Stækkun: 133,6 ferm., 388,7 rúmm. Eftir stækkun, A-rými: 247,7 ferm., 765 rúmm.
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og
lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að
viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal
lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum
framkvæmdum á byggingarstað. Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs
dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem
tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa
byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin
lokaúttekt byggingarfulltrúa.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101524 → skrá.is
Hnitnúmer: 10017567