Fyrirspurn
591297-3689 MÁLSTAÐUR ehf, Ingólfsstræti 3, 101 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að byggja steinsteypta viðbyggingu á bakhlið, einangaða að utan og
klædda bárustáli, til að hækka þak og byggja kvist á framhlið og svalir á bakhlið, færa
glugga eldra húss til upprunalegs horfs og innrétta veitingastað í flokki I í kjallara gamla
hússins, vinnustofu listamanns á jarðhæð viðbyggingar og tvær íbúðir á efri hæðum á lóð
nr. 50 við Laugaveg.
Erindi fylgir bréf hönnuðar dags. 2. desember 2020 og umsögn Minjastofnunar Íslands
dags. 11. janúar 2021.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 5. febrúar 2021
fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 5. febrúar 2021 og bréf
skipulagsfulltrúa dags. 8. febrúar 2021.
Einnig fylgir bréf hönnuðar dags. 15. maí 2021 og endurskoðuð umsögn Minjastofnunar
Íslands dags. 12. maí 2021.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 11. júní 2021 fylgir
erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. júní 2021. Einnig fylgir bréf
skipulagsfulltrúa dags. 14. júní 2021.
Stækkun: 133,6 ferm., 388,7 rúmm.
Eftir stækkun, A-rými: 247,7 ferm., 765 rúmm.