Ólafur Ingi Tómasson tekur til máls. Til máls tekur Gunnar Axel Axelsson.
Til andsvar kemur Rósa Guðbjartsdóttir og leggur fram tillögu um að málinu verði vísað aftur til skipulags- og byggingarráðs.
Til andsvars kemur Ólafur Ingi Tómasson. Gunnar Axel Axelsson svarar andsvari.
Til máls tekur Adda María Jóhannsdóttir.
Bæjarstjóri Haraldur L. Haraldsson kemur upp í andvsvar. Adda María Jóhannsdóttir svarar andsvari. Til andsvars kemur bæjarfulltrúi Ólafur Ingi Tómasson. Adda María Jóhannsdóttir svarar andsvari. Til andsvars öðru sinni kemur Ólafur Ingi Tómasson.
Forseti ber upp til atkvæða framkomna tillögu um að málinu verði vísað aftur til skipulags- og byggingarráðs. Er það samþykkt með 11 greiddum atkvæðum.