Tekið fyrir að nýju erindi Arnars Skjaldarsonar sækir 17.02.2017 um að breyta deiluskipulagi í tvíbýli á lóðini samkv. uppdráttum Svövu Bjarkar Jónsdóttur 17.02.17. Skipulags- og byggingarráð samþykkti á fundi sínum að grenndarkynna nýja tillögu dags. 30.05.2017 að breyttu deiliskipulagi á lóð við Hamarsbraut 5 í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Um er að ræða breytingu á lóð fyrir einbýlishús í lóð fyrir tvíbýlishús og færslu á bílastæðum á lóð.
Breytt tillaga var grenndarkynnt frá 29.06.2017-10.08.2017. Athugasemdir bárust frá 10 aðilum. Bæjarstjórn samþykkti á fundi sínum 22.11. s.l. að vísa málinu aftur til skipulags- og byggingarráðs.
Svar
Skipulags- og byggingarráð frestar afgreiðslu málsins og felur skipulagsfulltrúa að taka saman greinargerð varðandi umferðar- og skólamál. Gert var stutt fundarhlé.