Síðast Samþykkt á fundi fyrir 8 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 629
Samþykkt
Fyrirspurn
Skipulags- og byggingarráð samþykkti á fundi sínum að grenndarkynna nýja tillögu dags. 30.05.2017 að breyttu deiliskipulagi á lóð við Hamarsbraut 5 í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Um er að ræða breytingu á lóð fyrir einbýlishús í lóð fyrir tvíbýlishús og færslu á bílastæðum á lóð. Breytt tillaga var grenndarkynnt frá 29.06.2017-10.08.2017. Athugasemdir bárust frá 10 aðilum. Lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa.
Svar

Skipulags- og byggingarráð samþykkir ódags. umsögn skipulagsfulltrúa og fyrir sitt leyti fyrirliggjandi tillögu að deiliskipulagi Hamarsbrautar 5 og að málinu verði lokið í samræmi við 41. gr. skipulagslaga 123/2010. og gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar Hafnarfjarðar:

"Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir tillögu að deilskipulagi Hamarsbrautar 5 og að málinu verði lokið í samræmi við 3. mgr. 41.gr. laga 123/2010."