Síðast tekið fyrir á fundi í gær.
Bæjarstjórn nr. 71
Annað
Fyrirspurn
Tillaga frá 163. fundi bæjarráðs frá 12. mars sl. liður Reglur um heimgreiðslur.
Lagðar eru fram tillögur að reglum um heimgreiðslur til foreldra vegna dagvistunar barna, gjaldskrá og minnisblaði sviðsstjóra fjölskyldusviðs, dags. 9. mars sl. Heiða Ösp Kristjánsdóttir, sviðstjóri fjölskyldusviðs kemur inn á fundinn og fer yfir tillögur að nýjum reglum um heimgreiðslur til foreldra. Fram kemur að heimgreiðslurnar séu ætlaðar foreldrum barna á aldrinum 12-30 mánaða sem eru búsett í Svf. Árborg og ekki komin með pláss á leikskóla eða í öðru dagvistunarúrræði. Gert er ráð fyrir að reglurnar taki gildi frá og með 1. apríl 2026 og upphæð heimgreiðslu með hverju barni verði kr. 110.000- sem er greidd mánaðarlega eftirá í allt að 11 mánuði á ári, en ekki er greitt fyrir júlímánuð.
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti reglur um heimgreiðslur og vísar áfram til afgreiðslu í bæjarstjórn Árborgar. Bæjarráð vísar málinu einnig til umsagnar í velferðarnefnd og fræðslu- og frístundanefnd sem fylgi með til umræðu og afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjaráð felur bæjarstjóra að undirbúa viðauka vegna aukins fjármagns í heimgreiðslur á árinu 2026, að fjárhæð kr. 5.000.000,- til samþykktar.
Lagt er til við bæjarstjórn að samþykkja reglur og gjaldskrá fyrir heimgreiðslur.
Svar

Bragi Bjarnason, D-lista, Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista, Sigurjón Vídalín Guðmundsson, S-lista, Þórhildur Dröfn Ingvadóttir, D-lista, Ellý Tómasdóttir, B-lista, Álfheiður Eymarsdóttir, Á-lista, Sveinn Ægir Birgisson, D-lista, Ari Björn Thorarensen, D-lista, Arnar Freyr Ólafsson, B-lista og Brynhildur Jónsdóttir, D-lista, taka til máls.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 11 atkvæðum reglurnar og gjaldskrá fyrir heimgreiðslur.

Fjármagn er til staðar í verkefnið fyrstu mánuði heimgreiðslna, viðauki verður lagður fram vegna verkefnisins á fundi bæjarstjórnar.

Ellý Tómasdóttir, B-lista, tekur til máls og leggur fram eftirfarandi bókun bæjarfulltrúa B-lista:
Framsókn í Árborg lagði ríka áherslu á heimgreiðslur í aðdraganda síðustu kosninga undir yfirskriftinni „Mætum fjölskyldunni“, með það að markmiði að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla.

Við fögnum því að heimgreiðslur til foreldra ungra barna séu að verða að veruleika í sveitarfélaginu þó að það hefði mátt koma fyrr. Um er að ræða nauðsynlegt fyrsta skref í ljósi þess að ekki fækkar á biðlista eftir leikskólaplássi með fjölgun íbúa í sveitarfélaginu. Þetta er góð byrjun en það er enn langt í land.

Mikilvægt er að tryggja að úrræðið sé fjármagnað frá upphafi svo það veiti þann stuðning við barnafjölskyldur sem að er stefnt.

Framsókn leggur jafnframt áherslu á fjölgun leikskólaplássa í sveitarfélaginu. Sér í lagi í ljósi þess að plássum hjá dagforeldrum hefur fækkað á kjörtímabilinu. Að lokum leggjum við til að áfram verði unnið markvisst að eflingu leikskólastigsins þannig að börn komist fyrr inn í leikskóla.

Undir þetta rita
Ellý Tómasdóttir og Arnar Freyr Ólafsson bæjarfulltrúar B lista


Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista, tekur til máls og leggur fram eftirfarandi bókun bæjarfulltrúa S-lista:
Þessi tillaga frá meirihluta D- og Á-lista sýnir svo ekki verður um villst að það styttist í kosningar. Það er einkennilegt að tillaga um heimgreiðslur skyldi ekki koma fram í fjárhagsáætlunarvinnunni sl. haust og sett inn í fjárhagsáætlun ársins 2026 sem samþykkt var í desember sl. Það þykja ekki góðir stjórnsýsluhættir að þurfa að samþykkja viðauka við fjárhagsáætlun svo skömmu eftir að hún er samþykkt. Undirrituð hafa auk þess áhyggjur af því að áætlun um kostnað vegna heimgreiðslna sé allt of lág þar sem að það muni fleiri sækja um greiðslur heldur en gert er ráð fyrir í áætlun.

Svf. Árborg hefur því miður dregist verulega aftur úr nágrannasveitarfélögunum þar sem ekki er þörf á að bjóða upp á heimgreiðslur í dag því, þar eru í boði næg leikskólapláss og enginn biðlisti. Auk þess er farið að bjóða upp á gjaldfrjálsa leikskóla, ungu fólki munar aldeilis um minna.

Ungir foreldrar sem hafa lokið fæðingarorlofi sínu eru fæstir að biðja um heimgreiðslur, þeir þurfa að komast aftur til vinnu sinnar til þess að ná endum saman og geta staðið við skuldbindingar sínar. Heimgreiðslur eru ákveðin uppgjöf, plástur á sár en engin raunveruleg lausn á skorti á þjónustu við ungar barnafjölskyldur. Það er þó vissulega eilítil sárabót að þær fjölskyldur sem búa við mikla tekjuskerðingu vegna skorts á þjónustu, skuli fá smáræðis stuðning frá sveitarfélaginu.

Arna Ír Gunnarsdóttir bæjarfulltrúi S-lista
Sigurjón Vídalín Guðmundsson S-lista


Bragi Bjarnason, D-lista, tekur til máls og leggur fram eftirfarandi bókun bæjarfulltrúa D- og Á-lista:

Bæjarfulltrúar D- og Á-lista lýsa yfir ánægju með nýsamþykktar reglur um heimgreiðslur í Sveitarfélaginu Árborg. Heimgreiðslurnar auka valmöguleika foreldra ungra barna í samfélaginu sem kjósa að vera lengur heima með barni eða hafa ekki önnur dagvistunarúrræði áður en það fær leikskólapláss. Markmiðið er að áfram verði í boði dagvistunarúrræði hjá dagforeldrum en einnig að halda áfram fjölgun leikskólaplássa í Árborg.

Sveitarfélagið Árborg er með þessari ákvörðun að fylgja fordæmi fjölda sveitarfélaga sem bjóða upp á heimgreiðslur sem valmöguleika fyrir foreldra ungra barna, sem er jákvætt.

Til næstu ára er það síðan sameiginlegt verkefni ríkis og sveitarfélaga að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskólavistar.
Bragi Bjarnason, D-lista
Álfheiður Eymarsdóttir, Á-lista
Kjartan Björnsson, D-lista
Sveinn Ægir Birgisson, D-lista
Brynhildur Jónsdóttir, D-lista
Þórhildur Dröfn Ingvadóttir, D-lista
Ari Björn Thorarensen, D-lista