Síðast tekið fyrir á fundi í gær.
Annað
Fyrirspurn
Lagðar eru fram tillögur að reglum um heimgreiðslur til foreldra vegna dagvistunar barna, gjaldskrá og minnisblaði sviðsstjóra fjölskyldusviðs, dags. 9. mars sl.
Svar

Heiða Ösp Kristjánsdóttir, sviðstjóri fjölskyldusviðs kemur inn á fundinn og fer yfir tillögur að nýjum reglum um heimgreiðslur til foreldra. Fram kemur að heimgreiðslurnar séu ætlaðar foreldrum barna á aldrinum 12-30 mánaða sem eru búsett í Svf. Árborg og ekki komin með pláss á leikskóla eða í öðru dagvistunarúrræði. Gert er ráð fyrir að reglurnar taki gildi frá og með 1. apríl 2026 og upphæð heimgreiðslu með hverju barni verði kr. 110.000- sem er greidd mánaðarlega eftirá í allt að 11 mánuði á ári, en ekki er greitt fyrir júlímánuð.

Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti reglur um heimgreiðslur og vísar áfram til afgreiðslu í bæjarstjórn Árborgar. Bæjarráð vísar málinu einnig til umsagnar í velferðarnefnd og fræðslu- og frístundanefnd sem fylgi með til umræðu og afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjaráð felur bæjarstjóra að undirbúa viðauka vegna aukins fjármagns í heimgreiðslur á árinu 2026, að fjárhæð kr. 5.000.000,- til samþykktar. SamþykktHeiða Ösp Kristjánsdóttir, sviðstjóri fjölskyldusviðs fer af fundinum kl.8:40