Síðast tekið fyrir á fundi í gær.
Bæjarstjórn nr. 71
Annað
Fyrirspurn
Tillaga frá 58. fundi skipulagsnefndar frá 11. mars sl. liður 3. Jórvík 1 - Deiliskipulagsbreyting. Larsen hönnun leggur fram uppfærða tillögu breytinga á deiliskipulagi íbúðabyggðar í landi Jórvíkur I sem var frestað afgreiðslu á fundi nefndarinnar þann 25.2.2026. Markmið með deiliskipulagsbreytingu er að bæta nýtingu fjölbýlishúsalóða með fjölgun íbúða, stækkun á byggingareit, bilastæðum fækkað og hámarks vegg / mænishæð er hækkuð. Breytingar: Á fjölbýlishúsalóðum F2 er bílastæðum fækkað niður í 1 stæði á íbúð og hámarks vegg / mænishæð hækkar úr 8 m upp í 10 m. Á lóðunum Fossvík 1, 3 og 5 eru byggingareitir stækkaðir og íbúðum fjölgað í samræmi. Á lóðinni Nýja Jórvík 13, er íbúðum fjölgað. Að öðru leiti gilda eldri samþykktir skilmálar. Nýja Jórvík 13 fjölgar úr 12 íbúðum í 20. Fossvík 1 fjölgar úr 8 íbúðum í 12. Fossvík 3 fjölgar úr 8 íbúðum í 16. Fossvík 5 fjölgar úr 8 íbúðum í 12. Fjölgun samtals úr 36 íbúðum í 62. Skipulagsnefnd Árborgar mælist til þess við bæjarstjórn að viðkomandi breyting á deiliskipulagi svæðisins verði samþykkt. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar breytingar á deiliskipulagi. Jafnframt mælist nefndin til þess að breytingin verði sérstaklega kynnt aðliggjandi lóðarhöfum innan hverfisins.
Svar

Ari Björn Thorarensen, D-lista, Arnar Freys Ólafsson, B-lista, Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista, Sveinn Ægir Birgisson, D-lista og Sigurjón Vídalín Guðmundsson, S-lista, taka til máls.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 11 atkvæðum breytingar á deiliskipulagi svæðisins, í samræmi við bókun frá 58. fundi skipulagsnefndar frá 11. mars sl. Jórvík 1 - Deiliskipulagsbreyting. Bæjarstjórn felur skipulagsfulltrúa að fara með málið í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og kynna það sérstaklega aðliggjandi lóðarhöfum innan hverfisins.