Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 mánuðum síðan.
Bæjarstjórn nr. 67
Annað
Fyrirspurn
Tillaga frá 22. fundi velferðarnefndar frá 2. desember, liður 2. Tillaga að breytingum á reglum Árborgar um félagslegt leiguhúsnæði.
Lagt er fyrir Velferðarnefnd tillaga að breytum á reglum Árborgar um félagslegt leiguhúsnæði. Um er að ræða efnislegar breytingar á reglunum en heildarendurskoðun á matsblaði. Velferðarnefnd tekur til umræðu tillögu á breytingu reglna um félagslegt leiguhúsnæði í Sveitarfélaginu Árborg. Telur nefndin að um sé að ræða mikilvæga og þarfa endurskoðun.
Velferðarnefnd samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja reglurnar og þær taki gildi frá 1. janúar 2026.
Svar

Til máls taka Helga Lind Pálsdóttir, D-lista og Fjóla St. Kristinsdóttir, D-lista.

Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 11 atkvæðum.