Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 mánuði síðan.
Bæjarstjórn nr. 65
Annað
Fyrirspurn
Tillaga frá UNGSÁ um að sveitarfélagið sýni frumkvæði og hefji viðræður við ríkið um uppbyggingu nýrrar heimavistar við Fjölbrautaskóla Suðurlands.
Svar

Guðrún Birna Kjartansdóttir tekur til máls f.h. ungmennaráðs og leggur fram eftirfarandi tillögu:

Ungmennaráð Árborgar leggur til að sveitarfélagið sýni frumkvæði og hefji viðræður við ríkið um uppbyggingu nýrrar heimavistar við Fjölbrautaskóla Suðurlands.

Núverandi heimavist skólans er staðsett að Austurvegi 28 á Selfossi. Þar eru einungis 18 herbergi á efri hæð hússins fyrir nemendur, en á neðri hæðinni dvelja farandverkamenn. Takmarkað pláss veldur því að ekki allir nemendur, sem þurfa á heimavist að halda, fá þar inni. Þetta er óviðunandi staða fyrir jafn fjölmennan skóla og FSu.

Margir nemendur þurfa að aka allt að klukkutíma á hverjum degi til að sækja skólann. Þrátt fyrir möguleikann á heimavist velja margir að keyra frekar, þar sem aðstæður á vistinni eru ófullnægjandi og plássið af skornum skammti. Þetta er miður, því Suðurland er víðfeðmt svæði og mikilvægt er að skólinn sé raunhæfur kostur fyrir nemendur hvaðanæva að af landinu.

Með uppbyggingu nýrrar og stærri heimavistar myndi aðgengi að menntun aukast, skólasókn batna og fleiri nemendur gætu nýtt sér nám við Fjölbrautaskóla Suðurlands. Á lóð skólans er nægilegt rými til að byggja slíka viðbót.

Ungmennaráð Árborgar lagði fram þessa tillögu á bæjarstjórnarfundi á síðasta ári, en hingað til hefur ekkert gerst í málinu. Við hvetjum því sveitarfélagið eindregið til að beita sér fyrir málinu og hefja formlegar viðræður við ríkið um byggingu nýrrar, vandaðrar heimavistar á lóð skólans.

Að loknum umræðum samþykkir bæjarstjórn samhljóða að vísa tillögunni til fræðslu- og frístundanefndar.