Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 mánuði síðan.
Bæjarráð nr. 156
Annað
Fyrirspurn
Tillaga frá 25. fundi fræðslu- og frístundanefndar frá 14. janúar sl. liður 8. Tillaga frá UNGSÁ - Heimavist FSu Á 65. fundi bæjarstjórnar vísaði bæjastjórn eftirfarandi tillögu UNGSÁ til fræðslu- og frístundanefndar:
Ungmennaráð Árborgar leggur til að sveitarfélagið sýni frumkvæði og hefji viðræður við ríkið um uppbyggingu nýrrar heimavistar við Fjölbrautaskóla Suðurlands. Núverandi heimavist skólans er staðsett að Austurvegi 28 á Selfossi. Þar eru einungis 18 herbergi á efri hæð hússins fyrir nemendur, en á neðri hæðinni dvelja farandverkamenn. Takmarkað pláss veldur því að ekki allir nemendur, sem þurfa á heimavist að halda, fá þar inni. Þetta er óviðunandi staða fyrir jafn fjölmennan skóla og FSu. Margir nemendur þurfa að aka allt að klukkutíma á hverjum degi til að sækja skólann. Þrátt fyrir möguleikann á heimavist velja margir að keyra frekar, þar sem aðstæður á vistinni eru ófullnægjandi og plássið af skornum skammti. Þetta er miður, því Suðurland er víðfeðmt svæði og mikilvægt er að skólinn sé raunhæfur kostur fyrir nemendur hvaðanæva að af landinu. Með uppbyggingu nýrrar og stærri heimavistar myndi aðgengi að menntun aukast, skólasókn batna og fleiri nemendur gætu nýtt sér nám við Fjölbrautaskóla Suðurlands. Á lóð skólans er nægilegt rými til að byggja slíka viðbót. Ungmennaráð Árborgar lagði fram þessa tillögu á bæjarstjórnarfundi á síðasta ári, en hingað til hefur ekkert gerst í málinu. Við hvetjum því sveitarfélagið eindregið til að beita sér fyrir málinu og hefja formlegar viðræður við ríkið um byggingu nýrrar, vandaðrar heimavistar á lóð skólans. Að loknum umræðum samþykkir bæjarstjórn samhljóða að vísa tillögunni til fræðslu- og frístundanefndar.
Fræðslu- og frístundanefnd tekur undir áhyggjur UNGSÁ og vísar erindinu áfram til bæjarráðs.
Svar

Bæjarráð tekur undir áhyggjur UNGSÁ og fræðslunefndar og ítrekar mikilvægi þess að ráðist verði í framkvæmdir á nýrri heimavist við Fjölbrautarskóla Suðurlands hið fyrsta. Bæjarráð mun áfram þrýsta á ríkisvaldið að hefja undirbúning á varanlegri lausn á heimavist skólans. Samþykkt