Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 mánuðum síðan.
Bæjarstjórn nr. 65
Annað
Fyrirspurn
Tillaga frá UNGSÁ um að samræma einkunnakerfi í grunnskólum sveitarfélagsins.
Svar

Björgvin Gunnar Héðinsson tekur til máls f.h. ungmennaráðs og leggur fram eftirfarandi tillögu:

Ungmennaráð Árborgar leggur til að samræma einkunnakerfi í grunnskólum sveitarfélagsins

Einkunnagjöf er mat á þeirri hæfni og þekkingu sem nemandi hefur öðlast í námi. Mikilvægt er að samræma einkunnagjöf í grunnskólum sveitarfélagsins, þar sem hún getur verið mismunandi milli skóla. Slíkur munur getur leitt til þess að nemendur fá ólíkar einkunnir fyrir sama árangur, sem skapar ójafnræði og getur haft áhrif á framtíðarnám þeirra.

Sem dæmi úr ungmennaráðinu þá gekk einn meðlimur í Vallaskóla á sama tíma á meðan annar var í Sunnulækjarskóla. Báðum aðilum gekk vel í námi og í einu prófi fengu báðir allt rétt. Þrátt fyrir það var einkunnin ekki sú sama ? einn fékk B og hinn A. Þessi litli munur hafði áhrif á útskriftareinkunnina og varð til þess að B nemandinn þurfti að taka einum fleiri áfanga en A nemandinn í framhaldsskóla.

Til að tryggja jafnræði og áreiðanleika í námsmati er lagt til að bæjarstjórn Árborgar skoði það að samræma einkunnagjöf milli grunnskólanna. Eins og við höfum rætt áður á á bæjarstjórnarfundum er einn möguleiki að koma á fót Safnskóla. Safnskóli myndi koma í veg fyrir þetta ósamræmi og ójafnræði milli grunnskólanna í sveitarfélaginu. Á meðan á undirbúningi og framkvæmdum stendur væri jafnframt hægt að efla samstarf með því að halda fleiri fundi milli kennara og skólastjórnenda, þar sem bornar væru saman leiðir, verkefni og matsviðmið.

Að loknum umræðum samþykkir bæjarstjórn samhljóða að vísa tillögunni til fræðslu- og frístundanefndar.