Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 mánuðum síðan.
Bæjarstjórn nr. 67
Annað
Fyrirspurn
Tillaga frá 22, fundi velferðarnefndar frá 2. desember, liður 3. Heildarendurskoðun á reglum Árborgar um fjárhagsaðstoð. Lagt er fyrir heildarendurskoðun á reglum Árborgar um fjárhagsaðstoð. Um er að ræða efnislegar breytingar ásamt hugsanlegum kostnaðarauka í sumum tilvikum.
Velferðarnefnd tekur til umræðu heildarendurskoðun reglna um fjárhagsaðstoð í Sveitarfélaginu Árborg. Telur nefndin rétt að samþykkja þær efnislegu breytingar sem lagðar eru til og að framfærslu kvarðar verði teknir út úr reglum en birtar á heimasíðu sveitarfélagsins.
Nefndin leggur til við bæjarstjórn að samþykkja reglurnar.
Svar

Til máls taka Helga Lind Pálsdóttir, D-lista, Fjóla St. Kristinsdóttir, D-lista og Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista.

Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 11 atkvæðum.