Bragi Bjarnason, D-lista, Björgvin Guðni Sigurðsson, varabæjarfulltrúi S-lista, Sveinn Ægir Birgisson, D-lista, Sigurjón Vídalín Guðmundsson, S-lista, Fjóla St. Kristinsdóttir, D-lista og Axel Sigurðsson, varabæjarfulltrúi Á-lista, taka til máls.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu að deiliskipulagi fyrir nýtt öryggisfangelsi á Stóra Hrauni L215875, í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og felur skipulagsfulltrúa að auglýsa tillöguna í samræmi við 41. gr. skipulagslaga.
Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 11 atkvæðum.