Fyrirspurn
Eftirfarandi er lagt til:
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Árborgar samþykkir hér með á fundi bæjarstjórnar að veita einfalda ábyrgð og veðsetja til tryggingar ábyrgðinni tekjur sínar í samræmi við hlutfall eignarhalds, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. og 2. mgr. 69. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, til tryggingar láns Selfossveitna hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að kr. 225.000.000,- á árinu 2025 með þeim lánaskilmálum sem bjóðast á þeim tíma sem lántaka fer fram. Ábyrgðin tekur til allra greiðslna sem og hvers kyns kostnaðar sem hlýst af vanskilum. Nær samþykki bæjarstjórnar jafnframt til undirritunar lánasamnings og að sveitarfélagið beri þær skyldur sem þar greinir.
Er lánið tekið til endurfjármögnunar á afborgunum eldri lána félagsins hjá Lánasjóðnum sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.
Bæjarstjórn Árborgar skuldbindur hér með sveitarfélagið sem eiganda félagsins til að breyta ekki ákvæði samþykkta félagsins sem leggur hömlur á eignarhald að félaginu að því leyti að félagið megi ekki fara að neinu leyti til einkaaðila.
Fari svo að sveitarfélagið selji eignarhlut sinn í félaginu til annarra opinberra aðila, skuldbindur sveitarfélagið sig til að sjá til þess að jafnframt yfirtaki nýr eigandi á sig ábyrgð á láninu að sínum hluta.
Jafnframt er Braga Bjarnasyni, bæjarstjóra, kt. 250481-5359, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Sveitarfélagsins Árborgar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns eftir þörfum hverju sinni.