Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Bæjarstjórn nr. 52
Annað
Fyrirspurn
Tillaga frá 39. fundi skipulagsnefndar frá 15. janúar, liður 3. Eyrarbakkavegur - Farsímamastur og tækjaskýli - Deiliskipulag.
Lögð er fram tillaga að nýju deiliskipulagi á vegslóða Háeyrarvegs (norðan við Hjalladæl)á Eyrarbakka. Um er að ræða deiliskipulag fyrir nýja lóð sem nýtt verður undir farsímasendibúnað ásamt tækjaskýli fyrir fjarskiptabúnað. Aðkoma að lóðinni er sunnan frá Háeyrarvegi. Lóðin er á opnu svæði samkvæmt Aðalskipulagi Árborgar 2020-2036 og er engin byggð á svæðinu. Fjarlægð masturs frá miðlínu Eyrarbakkavegar er um 50m og 160m að lóðarmörkum íbúðarhúsa við Hjalladæl.
Skipulagsnefnd samþykkir fyrir sitt leyti, tillögu að deiliskipulagi í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, og mælist til að Bæjarstjórn Árborgar samþykki tillöguna, og feli skipulagsfulltrúa að auglýsa tillöguna í samræmi við 41. gr. skipulagslaga.
Svar

Ari Björn Thorarensen, D-lista og Fjóla St. Kristinsdóttir, D-lista, taka til máls.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu að deiliskipulagi í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og felur skipulagsfulltrúa að auglýsa tillöguna í samræmi við 41. gr. skipulagslaga.

Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt með 6 atkvæðum D-lista, 1 atkvæði Á-lista, 2 atkvæðum S-lista, 1 atkvæði B-lista, Arnar Freyr Ólafsson, B-lista, situr hjá við afgreiðslu málsins.