Fyrirspurn
Tillaga frá 39. fundi skipulagsnefndar frá 15. janúar sl. liður 2. Stjörnusteinar 7 og Heiðarbrún 2-8b - Deiliskipulag íbúðargötu.
Deiliskipulag fyrir Stjörnusteina 7 og Heiðarbrún 2-8b, sem tók gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda þann 16. maí 2024, er hér með lagt fram að nýju í skipulagsnefnd. Þann 27. mars 2024 hafði athugasemd borist í tölvupósti, sem einhverra hluta vegna rataði ekki inn í skjalavistun málsins. Íbúar við Heiðarbrún 8 á Stokkseyri mótmæltu þar harðlega, að fella niður eldra deiliskipulag, og lýsa andstöðu við nýtt deiliskipulag sem tekur til fleiri lóða.
Tillaga Landhönnunar slf, tekur til lóðanna Stjörnusteinar 2 og einnig til lóðanna Heiðarbrún 2-8b, á Stokkseyri. Skipulagsnefnd Árborgar hefur um nokkurt skeið horft til þess að reyna að þétta byggð, þar sem þess er nokkur kostur. Hefur verið horft sérstaklega til auðra lóða sem hafa staðið þannig árum og áratugum saman í þegar byggðum hverfum. Nefndin telur að það sé ávinningur fyrir sveitarfélagið Árborg, að það séu byggð hús á lóðunum, innan um önnur íbúðarhús, og myndist þá heildstæð götumynd á hverju svæði fyrir sig. Meginmarkmið deiliskipulagstillögunnar er að gera deiliskipulag fyrir götulínuna á fyrrgreindum lóðum, Stjörnusteinar 2 og lóðirnar Heiðarbrún 2-8b, á Stokkseyri. Deiliskipulagstillagan er í samræmi við Aðalskipulag Árborgar 2020-2036. Fyrir eru í gildi deiliskipulög fyrir lóðina Heiðarbrún 6 og Heiðarbrún 8, og munu þau falla úr gildi við gildistöku nýs deiliskipulags.
Skipulagsnefnd samþykkir fyrir sitt leyti, tillögu að deiliskipulagi í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, og mælist til að Bæjarstjórn Árborgar samþykki tillöguna, og feli skipulagsfulltrúa að auglýsa tillöguna í samræmi við 41. gr. skipulagslaga.