Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Bæjarstjórn nr. 49
Annað
Fyrirspurn
Tillaga frá 37. fundi skipulagsnefndar frá 27. nóvember sl. liður 3. Miðbær Selfoss. Tryggvatorg og árbakkasvæði - Borholuhús. DSK.Br. Erla Bryndís Kristjánsdóttir, Verkís f.h. Selfossveitna leggur fram tillögu að breytingu deiliskipulags miðbæjar Selfoss, Tryggvatorg og Árbakkasvæði skv. meðfylgjandi uppdrætti og greinargerð dags. 14.11.2024. Breytingin tekur til vestasta hluta gildandi deiliskipulags og er svæðið um 0,37 ha að stærð. Afmörkuð er 334 m2 lóð fyrir nýja dælustöð fyrir vinnslu og dælingu jarðhitavatns úr borholu SE45. Lóðin er í minnst 10m fjarlægð frá árbakka og er byggingarreitur afmarkaður 2m frá lóðarmörkum. Tildrög breytingarinnar er aukin þörf fyrir afhendingu heitavatns á Selfossi vegna mikillar uppbyggingar og íbúafjölgunar. Nýtanlegt jarðhitavatn hefur fundist með borun holu SE45 á bökkum Ölfusár innan marka deiliskipulagsins. Skipulagsnefnd samþykkir fyrir sitt leyti breytingartillögu í samræmi við 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og samþykkir að tillagan verði auglýst skv. 41. gr. sömu laga, og mælist til að Bæjarstjórn Árborgar samþykki tillöguna skv. 43. gr. skipulagslaga og til auglýsingar í samræmi við 41. gr. sömu laga.
Svar

Til máls tók Sveinn Ægir Birgisson, D-lista.

Bæjarstjórn Árborgar samþykkir breytingartillögu í samræmi við 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og að tillagan verði auglýst skv. 41 gr. sömu laga.

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 11 atkvæðum.