Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Bæjarstjórn nr. 52
Annað
Fyrirspurn
Tillaga frá 115. fundi bæjarráðs frá 23. janúar sl. liður 2.
Endurskoðun reglna um sértækan húsnæðisstuðning. Tillaga frá 14. fundi velferðarnefndar frá 14. janúar, liður 6. Endurskoðun reglna um sértækan húsnæðisstuðning.
Lagt er til samþykktar tillögur að hækkun á tekju-og eignaviðmiðum í sértækum húsnæðisstuðning hjá sveitarfélaginu Árborg. Sjá nánar í minnisblaði, hér fylgjandi.
Velferðarnefnd leggur til við bæjarráð að samþykkja reglurnar.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja hækkun á tekju- og eignaviðmiðum á sértækum húsnæðisstuðningi, enda hefur verið gert ráð fyrir hækkunum í samþykktri fjárhagsáætlun.
Svar

Helga Lind Pálsdóttir, D-lista, tekur til máls.

Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 11 atkvæðum.