Eyravegur 40
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 6 mánuðum síðan.
Bæjarstjórn nr. 61
Annað
Fyrirspurn
Tillaga frá 49. fundi skipulagsnefndar frá 20. ágúst sl. liður 8. Eyravegur 40 - Deiliskipulag.
Tillaga að deiliskipulagi lögð fram að lokinni auglýsingu: Larsen Hönnun, f.h. lóðarhafa leggur fram tillögu að deiliskipulagi fyrir íbúðir á lóðinni Eyravegur 40 á Selfossi. Lóðin sem er 2605m2 að stærð, er skilgreind í Aðalskipulagi Árborgar 2020-2036 sem Miðsvæði, M6. Gert er ráð fyrir 3, 4 og 5 hæða stölluðu fjölbýlishúsi á lóð með íbúðum á öllum hæðum ofanjarðar. Heimild er fyrir kjallara t.d. fyrir bílastæði, geymslur eða önnur stoðrými. Húsagerðir eru frjálsar að öðru leyti en því sem lóðablöð, skilmálar þessir, byggingarreglugerð og aðrar reglugerðir segja til um. Útlit byggingar skal brjóta upp í formi, efnis og litavali. Einstaka byggingarhlutar, eins og þakkantur, svalir, skyggni mega standa utan byggingarreits ásamt sorpskýlum, djúpgámum, hjóla og vagnageymslu. Samtals er gert ráð fyrir allt að 34 íbúðum á lóðinni. Tillagan var auglýst í dagskránni, og Lögbirtingarblaði frá 3.4.2025 með athugasemdafresti til 20.5.2025. Tillagan var einnig aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins Árborgar, og á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar. Umsagnir bárust frá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands, Vegagerðinni og Brunavörnum Árnessýslu. Þá barst athugasemd frá Þorkeli Jóhanni Sigurðssyni, eiganda Löngumýrar 54, þar sem lýst er yfir áhyggjum af áhrifum skuggavarps af 5 hæða húsi, inn á lóð hans. Vegagerðin bendir á að fjöldi tenginga inn á lóðir við Eyraveg séu ekki heppilegar, og leggur til að, aðkoma verði frá Fossvegi. Embætti skipulagsfulltrúa hefur fundað með fulltrúum Vegagerðarinnar um lausnir er varðar fjölda vegtenginga við Eyraveg og hugsanlegra aðgerða vegna mögulegra umferðartafa og aukinnar slysahættu eins og tiltekið er um í umsögn Vegagerðarinnar. Niðurstaðan úr þeim samtölum er sú að farið verði í heildarendurskoðun á aðkomum inn á lóðir við Eyravegi með tilliti til umferðaröryggis og flæðis. Verði það gert í formi umferðarskipulags á milli Múla- og Hagatorgs. Að mati nefndarinn er nánari skoðun á umferðarmálum svæðisins einnig nauðsynlegt í tengslum við hugsanlega uppbyggingu á þróunarsvæði M7 sunnan Eyravegar. Mælist nefndin til að samráð verði haft til framtíðar við Vegagerðina um nánari útfærslu á umferðarmálum við Austurveg og Eyraveg í tengslum við áætlanir sem sveitarfélagið hefur unnið að undanfarin ár. Innan tillögunnar er lögð fram skuggavarpsgreining sem tekur til áhrifa uppbyggingarinnar á aðliggjandi lóðir m.v. sólarstöðu 21. júní, 23. september og 1. apríl kl.11. Samkvæmt stefnumörkun aðalskipulags Árborgar er gert ráð fyrir að byggingar næst Eyravegi geti verið allt að 6 hæðir, að mati nefndarinnar er því stefnumörkun framlagðs deiliskipulags í takt við heimildir aðalskipulags er varðar fjölda hæða þar sem gert er ráð fyrir uppbroti í fjölda hæða innan lóðarinnar þar sem gert er ráð fyrir 3 hæðum næst Eyravegi og allt að 5 hæðum næst Fossvegi.
Mælist nefndin til þess við bæjarstjórn að tillagan verði samþykkt eftir auglýsingu. Þeim sem athugasemdir gerðu við tillöguna verði kynnt niðurstaða sveitarfélagsins.
Svar

Til máls taka Bragi Bjarnason, D-lista og Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista.

Bæjarstjórn Árborgar hefur farið yfir umsagnir og athugasemdir, og er sammála viðbrögðum skipulagsnefndar. Farið verði í heildarendurskoðun á aðkomum inn á lóðir við Eyravegi með tilliti til umferðaröryggis og flæðis. Verði það gert í formi umferðarskipulags á milli Múla- og Hagatorgs. Bæjarstjórn tekur undir með skipulagsnefnd að farið verði í nánari skoðun á umferðarmálum svæðisins í tengslum við hugsanlega uppbyggingu á þróunarsvæði M7 sunnan Eyravegar.

Innan tillögunnar er lögð fram skuggavarpsgreining sem tekur til áhrifa uppbyggingarinnar á aðliggjandi lóðir m.v. sólarstöðu 21. júní, 23. september og 1. apríl kl.11. Samkvæmt stefnumörkun aðalskipulags Árborgar er gert ráð fyrir að byggingar næst Eyravegi geti verið allt að 6 hæðir, að mati bæjarstjórnar er því stefnumörkun framlagðs deiliskipulags í takt við heimildir aðalskipulags er varðar fjölda hæða þar sem uppbrot er í fjölda hæða innan lóðarinnar en gert er ráð fyrir 3 hæðum næst Eyravegi og allt að 5 hæðum næst Fossvegi.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 11 atkvæðum tillögu að deiliskipulagi fyrir íbúðir á lóðinni Eyravegur 40 á Selfossi. Jafnframt felur bæjarstjórn skipulagsfulltrúa að kynna þeim sem gerðu athugasemdir við tillöguna niðurstöðu sveitarfélagsins.

800 Selfoss
Landnúmer: 188506 → skrá.is
Hnitnúmer: 10073423