Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 6 mánuðum síðan.
Bæjarstjórn nr. 61
Annað
Fyrirspurn
Tillaga frá 49. fundi skipulagsnefndar frá 20. ágúst sl. liður 7. Suðurbraut 45 og 48 - Heimreið frá klasagötu - rökfærsla.
Tómas Helgi Tómasson, f.h. Lovísu Tómasdóttur og Örlygs Sævarssonar, lóðareigenda í Tjarnarbyggð, leggur fram rökfærslu vegna umsóknar um lagningu heimreiðar frá klasagötu við Suðurbraut 45 og 48. Framlögð beiðni er ekki í samræmi við gildandi stefnumörkun deiliskipulags svæðisins. Skilgreindir staðvísar og stöðföng innan deiliskipulagsins eru í samræmi við - reglugerð um skráningu staðfanga þar sem m.a. kemur fram að staðgreinum við götur í skipulagðri byggð sé úthlutað í hækkandi númeraröð eftir götu og raðast oddatölur vinstra megin en sléttar tölur hægra megin. Breyting á aðkomu myndi því að mati skipulagsnefndar verða til þess að endurskilgreining staðfanga við Suðurbraut þyrfti að eiga sér stað þar sem aðkoma að lóðinni er vinstra megin þegar keyrt er inn Suðurbraut. Rétt skilgreining staðfanga á grundvelli reglugerðar um skráningu staðfanga er að mati nefndarinnar mikilvæg, sérstaklega gangvart öryggisþáttum þar sem sjúkrabílar og slökkvilið geti gengið út frá samræmingu í númeringu lóða innan svæðisins. Auk þess samræmist beiðnin ekki stefnumörkun gildandi deiliskipulags svæðisins.
Mælist skipulagsnefndin til þess við bæjarstjórn að framlagðri beiðni verði synjað.
Svar

Til máls tekur Bragi Bjarnason, D-lista.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 11 atkvæðum tillögu skipulagsnefndar um að hafna framlagðri beiðni.

801 Selfoss
Landnúmer: 206315 → skrá.is
Hnitnúmer: 10105751
Deiliskipulag
Tjarnabyggð í Kaldaðarnesi
Samþykkt 12.04.2006 · Deiliskipulag. Nýtt DSK