Eyravegur 40
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 7 mánuðum síðan.
Bæjarstjórn nr. 55
Annað
Fyrirspurn
Tillaga frá 42. fundi skipulagsnefndar frá 19. mars sl. liður 5. Eyravegur 40 - Deiliskipulag.
Larsen Hönnun, f.h. lóðarhafa leggur fram tillögu að deiliskipulagi fyrir íbúðir á lóðinni Eyravegur 40 á Selfossi. Lóðin sem er 2605m2 að stærð, er skilgreind í Aðalskipulagi Árborgar 2020-2036 sem Miðsvæði, M6. Gert er ráð fyrir 3, 4 og 5 hæða stölluðu fjölbýlishúsi á lóð með íbúðum á öllum hæðum ofanjarðar. Heimild er fyrir kjallara t.d. fyrir bílastæði, geymslur eða önnur stoðrými. Húsagerðir eru frjálsar að öðru leyti en því sem lóðablöð, skilmálar þessir, byggingarreglugerð og aðrar reglugerðir segja til um. Útlit byggingar skal brjóta upp í formi, efnis og litavali. Einstaka byggingarhlutar, eins og þakkantur, svalir, skyggni mega standa utan byggingarreits ásamt sorpskýlum, djúpgámum, hjóla og vagnageymslu. Samtals er gert ráð fyrir allt að 34 íbúðum á lóðinni.
Skipulagsnefnd samþykkir fyrir sitt leyti tillögu að deiliskipulagi í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, og mælist til að bæjarstjórn Árborgar samþykki tillöguna, og feli skipulagsfulltrúa að auglýsa tillöguna í samræmi við 41. gr. skipulagslaga.
Svar

Til máls tóku Bragi Bjarnason, D-lista, Sigurjón Vídalín Guðmundsson S-lista, Fjóla St. Kristinsdóttir, D-lista.

Eftirfarandi er lagt til:
Bæjarstjórn samþykkir að fela skipulagsfulltrúa að auglýsa tillögu að deiliskipulagi í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 11 atkvæðum.

800 Selfoss
Landnúmer: 188506 → skrá.is
Hnitnúmer: 10073423