Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 11 mánuðum síðan.
Bæjarstjórn nr. 55
Annað
Fyrirspurn
Tillaga frá 42. fundi skipulagsnefndar frá 19. mars sl. liður 8. Votmúli I. L166214 - Múli 1-8 - Deiliskipulag 6 landspildna.
Votmúli ehf. leggur fram tillögu að breytingu á gildandi deiliskipulagi fyrir Votmúla 1 (Múli 1 og 2). Breytingin gerir ráð fyrir að fjölga lóðum úr tveimur í sex lóðir, og stækkar þar með skipulagssvæðið úr 20 ha. yfir í 41.2 ha. Á lóðunum Múli 1-8 verður heimilt að vera með íbúðarhúsnæði og hesthús ásamt starfsemi sem tengist hrossarækt. Gert er ráð fyrir tveimur byggingarreitum innan hverrar lóðar: B1 byggingarreitur fyrir íbúðarhús og byggingar tengdum íbúum s.s. íbúðarhús, gesthús, gróðurhús og stakstæðum bílskúr. B2 byggingarreitur er áætlaður byggingum tengdum hrossarækt eða landbúnaði skv. 4.7.1. gr. í gildandi aðalskipulagi Árborgar 2020-2036. Lóðirnar hafa aðkomu í gegnum afleggjara við Votmúla sem tengist Votmúlavegi nr. 310.
Skipulagsnefnd samþykkir fyrir sitt leyti tillögu að breyttu deiliskipulagi í samræmi við 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, og mælist til að bæjarstjórn Árborgar samþykki tillöguna, og feli skipulagsfulltrúa að auglýsa tillöguna í samræmi við 41. gr. skipulagslaga.
Svar

Til máls tóku Bragi Bjarnason, D-lista og Fjóla St. Kristinsdóttir, D-lista.

Eftirfarandi er lagt til:
Bæjarstjórn samþykkir að fela skipulagsfulltrúa að auglýsa tillögu að breytingu að deiliskipulagi, skv. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 41. gr. laganna.


Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 11 atkvæðum.