Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 11 mánuðum síðan.
Bæjarstjórn nr. 55
Annað
Fyrirspurn
Tillaga frá 42. fundi skipulagsnefndar frá 19. mars, liður 9. Deiliskipulag hesthúsasvæðis - Hestamannafélagið Sleipnir.
Meginmarkmið deiliskipulagsins er að setja fram heildstæða stefnu fyrir allt hesthúsahverfið, bæði núverandi svæði og stækkun þess til suðurs. Deiliskipulagið byggir í megindráttum á núverandi fyrirkomulagi með áherslu á bættar reiðleiðir og þjálfunarsvæði. Á svæði til suðurs verður gert ráð fyrir nýjum lóðum og þannig fjölgar notendum innan hesthúsasvæðisins. Kröfur um bættan aðbúnað hesta og manna hafa aukist á undanförnum árum og munu skilmálar um byggingu nýrra húsa og breytingar á eldri húsum taka mið af því. Deiliskipulagið nær til alls hesthúsahverfisins, sem er núverandi keppnis og hesthúsasvæði og stækkaðs hesthúsasvæðis, samtals um 27 ha. Deiliskipulagsmörkin ná einnig yfir hluta af opnu svæði milli Langholts og hesthúsahverfis vegna fyrirhugaðs reiðstígs þar. Stækkun núverandi svæðis er um 7 ha. að stærð. Á nýja svæðinu næst Dísastaðarlandi er gert ráð fyrir 19 nýjum hesthúsum meðfram Bæjartröð. Lóðir eru af þremur stærðum, og er gert ráð fyrir að innan þeirra verði heimilt að byggja stakstæð hús eða parhús. Hestagerði eru staðsett sunnan við hús beggja megin götu til að tryggja sól og skjól frá ríkjandi vindáttum. Auk 19 hefðbundinna hesthúsa er gert ráð fyrir tveimur stærri lóðum fyrir hesthús með litlum reiðskemmum. Skilmálar eru settir fyrir byggingu nýrra hesthúsa og eins eru settir fram skilmálar um mögulega endurbyggingu eldri húsa. Byggingarmagn á keppnissvæði er aukið umtalsvert, bæði fyrir fipo-keppnishöll en einnig fyrir minni hús til þjálfunar og fyrir áhorfendastúkur. Deiliskipulagið er í samræmi við Aðalskipulag Árborgar 2020-2036, þar sem svæðið er með landnotkunina ÍÞ2. Með gildistöku þessa deiliskipulags falla allar eldri skipulagsáætlanir fyrir svæðið úr gildi.
Skipulagsnefnd samþykkir fyrir sitt leyti tillögu að deiliskipulagi í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, og mælist til að bæjarstjórn Árborgar samþykki tillöguna, og feli skipulagsfulltrúa að auglýsa tillöguna í samræmi við 41. gr. skipulagslaga.
Svar

Til máls tóku Bragi Bjarnason, D-lista, Fjóla St. Kristinsdóttir, D-lista, Sigurjón Vídalín Guðmundsson, S-lista og Sveinn Ægir Birgisson, D-lista

Eftirfarandi er lagt til:
Bæjarstjórn samþykkir að fela skipulagsfulltrúa að auglýsa tillöguna í samræmi við 41. gr. skipulagslaga.

Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt með 11 atkvæðum.