Fyrirspurn
Tillaga frá 61. fundi skipulagsnefndar frá 4. maí sl. liður 7. Deiliskipulag hesthúsasvæðis - Hestamannafélagið Sleipnir.
Tillaga deiliskipulags fyrir hesthúsasvæði ÍÞ2 á Selfossi var felld úr gildi með úrskurði ÚUA þess efnis þann 21. apríl 2026. Að mati Úrskurðarnefndar var ekki fjallað með fullnægjandi hætti um umhverfisáhrif deiliskipulagsins til þátta eins og lyktar, rykmyndunar, hljóðvistar, umferðarálags og áhrifa á sjónræna þætti. Er því lögð fram að nýju tillaga deiliskipulags fyrir hesthúsasvæði ÍÞ2 á Selfossi með uppfærðu mati á umhverfisáhrifum skipulagstillögunnar. Meginmarkmið deiliskipulagsins er að setja fram heildstæða stefnu fyrir allt hesthúsahverfið, bæði núverandi svæði og stækkun þess til suðurs.
Deiliskipulagið byggir í megindráttum á núverandi fyrirkomulagi með áherslu á bættar reiðleiðir og þjálfunarsvæði. Á svæði til suðurs verður gert ráð fyrir nýjum lóðum og þannig fjölgar notendum innan hesthúsasvæðisins. Kröfur um bættan aðbúnað hesta og manna hafa aukist á undanförnum árum og munu skilmálar um byggingu nýrra húsa og breytingar á eldri húsum taka mið af því. Deiliskipulagið nær til alls hesthúsahverfisins, sem er núverandi keppnis- og, hesthúsasvæði og stækkaðs hesthúsasvæðis, samtals um 27 ha. Deiliskipulagsmörkin ná einnig yfir hluta af opnu svæði milli Langholts og hesthúsahverfis vegna fyrirhugaðs reiðstígs þar. Stækkun núverandi svæðis er um 7 ha að stærð. Á nýja svæðinu næst Dísastaðarlandi er gert ráð fyrir 19 nýjum hesthúsum meðfram Bæjartröð. Lóðir eru af þremur stærðum, og er gert ráð fyrir að innan þeirra verði heimilt að byggja stakstæð hús eða parhús. Hestagerði eru staðsett sunnan við hús beggja megin götu til að tryggja sól og skjól frá ríkjandi vindáttum. Auk 19 hefðbundinna hesthúsa er gert ráð fyrir tveimur stærri lóðum fyrir hesthús með litlum reiðskemmum. Skilmálar eru settir fyrir byggingu nýrra hesthúsa og eins eru settir fram skilmálar um mögulega endurbyggingu eldri húsa.
Byggingarmagn á keppnissvæði er aukið umtalsvert, bæði fyrir fipo keppnishöll en einnig fyrir minni hús til þjálfunar og fyrir áhorfendastúkur.
Deiliskipulagið er í samræmi við Aðalskipulag Árborgar 2020-2036, þar sem svæðið er skilgreint með landnotkunina ÍÞ2 hesthúsasvæði.
Skipulagsnefnd Árborgar mælist til þess við bæjarstjórn að deiliskipulagið verði samþykkt til auglýsingar á grundvelli 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem allar meginforsendur fyrir gerð deiliskipulagstillögunnar liggi fyrir innan aðalskipulags sveitarfélagsins og að brugðist hafi verið við niðurstöðu Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála um mat á umhverfisáhrifum skipulagsins með fullnægjandi hætti innan tillögunnar.