Síðast tekið fyrir á fundi í gær.
Annað
Fyrirspurn
Tillaga frá 61. fundi skipulagsnefndar frá 4. maí sl. liður 2. Ljónsstaðir - Ljón 1-3 - Deiliskipulag. Lögð er fram tillaga deiliskipulags sem tekur til þriggja lóða úr landi Ljónsstaða hver um sig um 1 ha að stærð. Í skipulaginu felst heimild til uppbyggingar á íbúðarhúsi ásamt sambyggðri bílgeymslu auk húsnæðis fyrir landbúnaðartengda starfsemi og/eða minniháttar atvinnustarfsemi ótengdri landbúnaði.
Skipulagsnefnd Árborgar mælist til þess við bæjarstjórn að deiliskipulagið verði samþykkt til auglýsingar á grundvelli 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem allar meginforsendur fyrir gerð deiliskipulagstillögunnar liggi fyrir innan aðalskipulags sveitarfélagsins. Tillagan verði sérstaklega kynnt aðliggjandi lóðarhöfum.
Svar

Til máls tekur Bragi Bjarnason, D-lista.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 11 atkvæðum deiliskipulag fyrir Ljónsstaðir - Ljón 1-3 með vísan til 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bæjarstjórn felur skipulagsfulltrúa að kynna aðliggjandi lóðarhöfum framlagða skipulagstillögu.

801 Selfoss
Landnúmer: 166195 → skrá.is
Hnitnúmer: 10054556