Nauthólsvík, breyting á deiliskipulagi
Nauthólsvík (01.68)
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 56
4. desember, 2019
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs, skipulagsfulltrúa, að breytingu á deiliskipulagi Nauhólsvíkur vegna aðkomutengingar við fyrirhugaða Fossvogsbrú á um 350 m kafla nýrrar tveggja akreinar akbrautar fyrir almenningssamgöngur sem fellur innan deiliskipulagsins. Kaflinn er hluti af stærri framkvæmd sem er brú yfir Fossvog fyrir almenningssamgöngur, gangandi og hjólandi vegfarendur. Samhliða breytingunni eru gerðar nokkrar fleiri breytingar á skipulaginu og það uppfært miðað við núverandi ástand. Lagðir eru fram uppdr. Landmótunar dags. 11. nóvember 2019. Einnig er lögð fram greinargerð Landmótunar dags. 11, nóvember 2019. Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til borgarráðs.
Svar

Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins bókar: 

Gestir
Björn Ingi Edvardsson verkefnastjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
105 Reykjavík
Landnúmer: 107480 → skrá.is
Hnitnúmer: 10090426