Hamrahlíð 17, breyting á deiliskipulagi
Hamrahlíð 17 (01.714.1)
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 56
4. desember, 2019
Annað
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn ASK Arkitekta ehf. dags 1. júlí 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi Stakkahlíð á lóðinni nr. 17 við Hamrahlíð. Í breytingunni felst að byggja inndregna hæð ofan á húsið, samkvæmt uppdr. ASK Arkitekta ehf. 1. júlí 2019. Tillagan var auglýst frá 10. september 2019 til og með 22. október 2019. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Lovísa Fjeldsted, Anna Agnarsdóttir, Gunnar Hansson og Guðrún Þura Kristjánsdóttir íbúar og eigendur Blönduhlíðar 35 dags. 11. október 2019, stjórn húsfélagsins Bogahlíð 20-22 f.h. íbúa og eigenda Bogahlíðar 20-22 dags. 14. október 2019, Lárus Þór Jónsson, Ólafur Már Lárusson, Sigríður María Lárusdóttir, Lilja Björk Jónsdóttir, Ragnheiður Gunnarsdóttir dags. 16. október 2019, Vilborg St. Sigurjónsdóttir f.h. íbúa og eigenda að Drápuhlíð 48 dags. 21. október 2019, Selma Dögg Víglundsdóttir, Ólafur Ólafsson, Sigríður K Yngvadóttir, Birna Halldórsdóttir, Geirmundur Hauksson og Elín Jónsdóttir fh. Stjórnar húsfélagsins Bogahlíð 12-18 dags. 21. október 2019, Lovísa Fjeldsted dags. 22. október 2019 og Lilja Margrét Olsen f.h. Sigrúnar Hermannsdóttur dags. 23. október 2019. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 29. nóvember 2019. Samþykkt sbr. 1.mgr. 42 gr. skipulagslaga nr. 123/2010, með þeim breytingum sem koma fram í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 29. nóvember 2019. Vísað til borgarráðs.
Svar

Lilja Grétarsdóttir verkefnastjóri tekur sæti undir þessum lið.

105 Reykjavík
Landnúmer: 107254 → skrá.is
Hnitnúmer: 10012353