breyting á deiliskipulagi
Fýlshólar 4
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 785
21. ágúst, 2020
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 24. júlí 2020 var lögð fram fyrirspurn Guðmundar Gunnlaugssonar, dags. 16. júlí 2020, um að byggja neðanjarðar bakbyggingu á lóð nr. 4 við Fýlshóla í átt að Vesturhólum, með hurð út á vesturgafli sem flóttaleið, samkvæmt uppdráttum Teiknistofunnar Stórhöfða 17, dags. 14. júlí 2020. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju.
Svar

Ekki eru gerðar athugasemdir við að fyrirspyrjandi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi í samræmi við erindið, á eigin kostnað. Tillagan verður grenndarkynnt þegar hún berst.

111 Reykjavík
Landnúmer: 111889 → skrá.is
Hnitnúmer: 10010140