(fsp) breyting á deiliskipulagi
Háskóli Íslands, Vísindagarðar
Síðast Vísað til verkefnisstjóra á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 785
21. ágúst, 2020
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Pálmars Kristmundssonar dags. 12. ágúst 2020 varðandi breytingu á deiliskipulagi Háskóla Íslands Vísindagarða vegna lóðarinnar nr. 15-19 við Sæmundargötu. Í breytingunni felst að dýpt innskota í byggingarreit er minnkuð í 3 metra og að byggingarreitir fyrir inndregna þakhæð eru sameinaðir í einn samfelldan reit, samkvæmt uppdr. PK Arkitekta ehf. dags. 1. ágúst 2020.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir hagsmunaaðilum að Sæmundargötu 2 og 19-21.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 7. 6.gr. sbr. 12. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1231/2018.